Search
Close this search box.

Jafnlaunastefna

Jafnlaunastefna OK

 

1 Tilgangur og gildissvið

Að allt starfsfólk Opinna Kerfa (OK) njóti jafnra launa og sömu kjara fyrir sömu eða jafnverðmæt störf þannig að enginn ómálefnalegur launamunur sé til staðar. Jafnlaunastefnan gildir fyrir allt starfsfólk OK og dótturfélaga þess. Stefnan var samþykkt af stjórn fyrirtækisins 03.10.2024 og skal endurskoðuð á þriggja ára fresti.

2 Ábyrgð

Forstjóri félagsins ber ábyrgð á að jafnlaunastefnu OK og að þeim lagalegu kröfum og öðrum kröfum sem tengjast jafnlaunakerfinu sé framfylgt.

Mannauðsstjóri er tilnefndur fulltrúi yfirstjórnar og er ábyrgur fyrir innleiðingu, viðhaldi, eftirliti, viðbrögðum og stöðugum umbótum jafnlaunakerfisins. Mannauðsstjóri ber ábyrgð á að framfylgja jafnlaunastefnu félagsins.

Stjórnendur bera ábyrgð á að starfað sé samkvæmt stefnunni og að framfylgja verklagsreglum sem að henni lúta.

3 Jafnlaunastefna

Markmið OK er að vera vinnustaður þar sem allt starfsfólk hafi jöfn tækifæri í starfi og að allt starfsfólk hjá félaginu njóti jafnra launa og kjara fyrir sömu eða jafnverðmæt störfog gætt sé jafnréttis í ákvörðunum er snúa að launum. OK beitir sér fyrir því að jafna óútskýrðan launamun milli starfsfólks ásamt því að innleiða, skjalfesta og viðhalda vottuðu jafnlaunakerfi í samræmi við kröfur jafnlaunastaðalsins ÍST 85:2012.

Jafnlaunastefna þessi er unnin í samræmi við lög nr. 150/2020 um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna og er órjúfanlegur hluti af starfsmannastefnu og launastefnu OK og er henni ætlað að tryggja að jafnréttis sé gætt við allar launaákvarðanir.

4 Framkvæmd

Til að framfylgja jafnlaunastefnunni skuldbindur OK sig til að:

  • Innleiða, skjalfesta og viðhalda jafnlaunakerfi í samræmi við kröfur jafnlaunastaðalsins ÍST 85:2012 ásamt því að öðlast ogviðhalda vottun í samræmi við gildandi lagareglur um jafnlaunavottun á hverjum tíma.
  • Setja fram og rýna jafnlaunamarkmið árlega.
  • Framkvæma árlega launagreiningu þar sem borin eru saman sömu eða jafnverðmæt störf í þeim tilgangi að kanna hvort kynbundinn launamunur sé til staðar.
  • Greina niðurstöður með stjórnendum og kynna starfsfólki niðurstöður launagreiningar hvað varðar kynbundinn launamun.
  • Hafa eftirlit og bregðast við óútskýrðum launamun með stöðugum umbótum.
  • Fylgja viðeigandi lögum, reglum og kjarasamningum sem í gildi eru á hverjum tíma.
  • Gera innri úttekt og halda rýni stjórnenda árlega.
  • Birta stefnuna á innri vef félagsins og kynna hana öllu starfsfólki.
  • Birta stefnuna á ytri vef félagsins.

Stefna þessi var samþykkt af framkvæmdastjórn 3. Október 2024.